Þórsarar tryggðu sér nú í kvöld sæti í úrslitaleik Lengjubikarsins eftir sigur á Haukum 83-82.
Þórsarar leiddu leikinn í fyrri hálfleik en í þriðja leikhluta komu Haukamenn sterkir inn og voru seinustu mínútur leiksins æsispennandi. Okkar menn náðu að halda út og spila því til úrslita á morgun.
Úrslitaleikurinn fer fram í Iðu á Selfossi og hefst leikurinn kl. 16:30.