Að mörgu þarf að huga þegar jafn stórt mót er haldið og Unglingalandsmót UMFÍ en unglingalandsmótið verður haldið í Þorlákshöfn árið 2018.
Sveitarfélagið Ölfuss er nú þegar byrjað að skipuleggja framkvæmdir sínar fyrir mótið og búið er að velja fulltrúa til að sitja í unglingalandsmótsnefnd.
Eftirfarandi aðilar voru valdir í nefndina sem fer í að undirbúa þetta stóra og mikla mót sem haldið verður í sveitarfélaginu eftir tæplega þrjú ár.
Fulltrúar í nefndinni eru:
- Anna Júlíusdóttir
- Eyrún Hafþórsdóttir
- Guðbjörg Heimisdóttir
- Ragnar M. Sigurðsson
- Gunnsteinn R. Ómarsson