Ragnar Nathanaelsson, leikmaður Þórs í körfubolta, var á dögunum kjörinn íþróttamaður Hveragerðis.
Ragnar hefur spilað vel með Þórs liðinu það sem af er vetri, skorað 14 stig og tekið 12 fráköst að meðaltali í leik. Það sem stóð þó hæst hjá kappanum á árinu var að komast á lokamót Evrópumótsins með A-landsliði Íslands í sumar þar sem liðið spilaði við stærstu körfuboltaþjóðir heims.
Hafnarfréttir óska Ragnari til hamingju með titilinn og er hann vel að honum kominn.