Í kvöld fer fram stórleikur í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn þegar Þór fær Keflavík í heimsókn í undanúrslitum bikarkeppni karla í körfubolta.
Það er mikið í húfi fyrir bæði lið þar sem sigurliðið mun leika til úrslita í Laugardalshöllinni en Þórsarar hafa aldrei áður komist í úrslit í bikarkeppninni.
Við hvetjum Þorlákshafnarbúa að drífa sig á völlinn í kvöld og hjálpa strákunum að komast alla leið í Laugardalshöllina.
Leikurinn hefst klukkan 19:15.