Það má með sanni segja að Hafnardagar hafi farið af stað með látum. Eftir setningu hátíðarinnar í Ráðhúskaffi og í næsta sal til hliðar steig á stokk Djassband Suðurlands.
Hljómsveitin spilaði gamla soul og motown sveiflu slagara og gerðu það með eindæmum vel.
Mikil stemning var á sviðinu sem smitaðist svona líka vel í áhorfendur sem skemmtu sér konunglega og greinilegt að fólk er komið í Hafnardaga gírinn.
Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndari Hafnarfrétta á tónleikunum.
[nggallery id=3]