Framfarasinnar í Ölfusi bjóða fram

framfarasinnar01Framboð óháðra og félagar í Framsóknarfélagi Ölfuss hafa ákveðið að bjóða aftur fram í komandi sveitarstjórnarkosningum undir nafni Framfarasinna í Ölfusi.

Á listanum sem samþykktur var á fundi Framsóknarfélags Ölfuss á dögunum eru nýjir frambjóðendur auk annara sem starfað hafa á núverandi kjörtímabili og sumir lengur að sveitastjórnarmálum.

Efstu þrjú sæti Framfarasinna að þessu sinni eru skipuð sömu einstaklingum og í síðustu kosningum árið 2010. Á síðasta kjörtímabili fékk listinn tvo kjörna bæjarfulltrúa

„Í heildina gekk mjög vel að manna listann og er kynjahlutfall jafnt,“ segir í tilkynningu Framfarasinna. „Málefnavinna framboðsins er hafin og eru allir sem koma að framboðinu fullir tilhlökkunar að takast á við verkefnin sem framundan eru í vor og á komandi kjörtímabili,“ segir ennfremur.

Listi Framfarasinna í Ölfusi: 
1. Sveinn Steinarsson, hrossabóndi og forseti bæjarstjórnar, Litlalandi Ölfusi.
2. Anna Björg Níelsdóttir, bókari og bæjarfulltrúi, Sunnuhvoli Ölfusi.
3. Jón Páll Kristófersson, rekstrarstjóri, Þorlákshöfn.
4. Ágústa Ragnarsdóttir, grafískur hönnuður og kennari, Þorlákshöfn.
5. Baldur Þór Ragnarsson, einkaþjálfari og körfuboltamaður, Þorlákshöfn.
6. Eyrún Hafþórsdóttir, ráðgjafi og nemi, Þorlákshöfn.
7. Grétar Geir Halldórsson, rafvirkjameistari, Þorlákshöfn.
8. Anna Júlíusdóttir, kennari, Þorlákshöfn.
9. Michal Rybinski, rafvirki, Þorlákshöfn.
10. Margrét S Stefánsdóttir, tónlistarkennari, Hvoli Ölfusi.
11. Sigurður Garðarsson, verkstjóri, Þorlákshöfn.
12. Valgerður Guðmundsdóttir, þjónustustjóri, Þorlákshöfn.
13. Páll Stefánsson, dýralæknir, Stuðlum Ölfusi.
14. Hansína Á. Björgvinsdóttir, fyrrv. kennari og bæjarstjóri í Kópavogi.