Uppistandarinn og grínistinn Ari Eldjárn mun mæta í félagsmiðstöðina Svítuna í kvöld.
Ari mun vera með uppistand fyrir nemendur í 8.-10. bekk grunnskólans í Þorlákshöfn en það er foreldrafélag skólans sem bíður upp á skemmtunina.
Uppistand Ara hefst klukkan 20 í Svítunni og það er frítt inn.