Þrátt fyrir að síðustu dagar hafi verið sólríkir hér sunnanlands, þá er stutt í að sumrinu ljúki.
Þegar því er að ljúka, þá fara skólar landsins að byrja aftur eftir sumarfrí og er Grunnskóli Þorlákshafnar þar engin undantekning.
Skólinn verður settur miðvikudaginn 20.ágúst í sal Grunnskólans í Þorlákshöfn.
Nemendur 6-10. bekkjar mæta kl 10:00.
Nemendur 1-5. bekkjar mæta kl 11:00.
Foreldrar/Forráðamenn eru velkomnir.