Eins og við hjá Hafnarfréttum höfum áður fjallað um þá var sú nýbreytni tekin upp í byrjun skólaárs að nemendur í Grunnskólanum í Þorlákshöfn fá nú að skammta sér matinn sjálfir í mötuneyti skólans.
Þessi tilraun hefur leitt af sér mikinn sparnað en matarsóun hefur minnkað um heil 36% frá því á síðasta skólaári. Þetta kemur fram skýrslu skólastjóra sem tekin var fyrir á seinasta fræðslunefndarfundi.
Þessi breyting hefur gengið virkilega vel sem hefur skilað sparnaði og ekki skemmir fyrir að nemendurnir eru mjög sáttir með þetta nýja fyrirkomulag.