Vel heppnuð og skemmtileg motorcrosskeppni – myndir

motorcross04Síðastliðinn laugardag hélt Vélhjóladeild Umf. Þórs skemmtikeppni á vélhjólasvæði deildarinnar með dyggum stuðningi Motocrossdeildarinnar á Selfossi en þessar tvær deildir hófu samstarf nú á vormánuðum og fer það mjög vel af stað.

Á bak við svona keppni liggur mikil vinna sem oft lendir á fáum höndum og erum við því spennt fyrir áframhaldandi samstarfi deildanna og þakklát öllum þeim aðilum sem komu að undirbúningi keppninnar og þeim sem veittu sína aðstoð á keppnisdegi. Sérstakar þakkir fær Björgunarsveitin í Þorlákshöfn en svona keppni er ekki hægt að halda nema vera með öryggisatriði og tilskilin leyfi í lagi. Við leituðum einnig stuðnings heimamanna (fyrirtækja) í sambandi við verðlaun fyrir keppnina. Tóku allir vel í það og gáfu fúslega góð og nytsamleg verðlaun og berum við Skálanum, Frostfiski, Náttúru fiskirækt, Meitlinum Veitingahúsi og þeirra forsvarsmönnum bestu þakkir fyrir.

Keppnin var svo ljómandi góð byrjun á hjólasumrinu og þátttakendur og áhorfendur almennt ánægðir með þessa uppákomu hjá okkur. Þarna mættu á þriðja tug hjólarar, ungir sem aldnir og kepptu saman í tveggja manna liðum þar sem viðmiðið var vanur ökumaður á móti óvönum. Í svona keppni eru reglur leiksins ekki mjög stífar og gerir það keppnina afslappaða og skemmtilega.

Þetta var góður dagur sem einkenndist af samvinnu og gleði í góðu veðri.

Gleðilegt hjólasumar
Fyrir hönd Vélhjóladeildar Umf. Þórs og Motocrossdeildar Umf. Selfoss
Helga Helgadóttir