Næstkomandi miðvikudag kl. 18:00 mun barna- og unglingaráð Ægis standa fyrir partýi í Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar.
Dagskrá:
- Leikmenn allra flokka verða kynntir
- Gunnleifur Gunnleifsson og Eva Lind segja frá sinni reynslu í boltanum
- Teknar verða myndir af leikmönnum og liðum Ægis
- Knattþrautir og blindrafótboltaleikur með meistaraflokki
- Iðkendur fá fótbolta að gjöf
- Sýning á foreldrapeysum, Ægismamma og Ægispabbi
- Kynning á Adidas takkaskóm
Hvetjum alla til að mæta og gera sér glaðan dag með okkur!