Föstudaginn 17. júní verður þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga haldinn hátíðlegur í Þorlákshöfn. Í ár er það körfuknattleiksdeild og frjálsíþróttadeild Þórs sem sjá um dagskrána sem er ekki að verri endanum.
Fánar dregnir að húni
11:00 – Afhjúpun skiltis við víkingaskip á útsýnisstað
Á útsýnisstað á varnargarði, þar sem útsýnisskífan er, er einnig víkingaskip sem Þorlákshafnarbúinn Erlingur Ævarr Jónsson teiknaði. Skipið minnir á að Auður Djúpúðga strandaði skipi sínu á Hafnarskeiðinu. Skilti sem staðsett er nálægt skipinu, verður afhjúpað og Erlingi þakkað fyrir hans framlag til samfélagsins með þessu listaverki.
11:00-12:00 – Fjör á frjálsíþróttavelli
Skemmtimót í óhefðbundnum íþróttum. Allir mega taka þátt!
13:30 – Skrúðganga frá grunnskólanum
Lúðrasveit Þorlákshafnar fer að sjálfsögðu fyrir göngunni
14:00 – Hátíðardagskrá í skrúðgarðinum
- Ávarp bæjarfulltrúa
- Lúðrasveit Þorlákshafnar
- Hátíðarræða
- Ávarp fjallkonunnar
- Kynning á breytingum á Skrúðgarðinum og vígsla á Kvenfélagstorgi, tileinkuð Kvenfélagi Þorlákshafnar.
- Hoppukastali og leikur fyrir börnin
15:00 – Hátíðarkaffi í Versölum
Kaffisala á vegum frjálsíþrótta- og körfuknattleiksdeildar Þórs
17:00 – Barnaskemmtun í Grunnskólanum í Þorlákshöfn
Töframaður, Solla stirða, Siggi sæti og diskótek