Þórsarar mæta Keflavík í 16-liða úrslitum

thor_haukar_okt2016-18Dregið var í 16-liða úrslit bikarkeppninnar í körfubolta í höfuðstöðvum KKÍ í hádeginu í dag.

Þór sat hjá í fyrstu umferð en þeir fá enga aukvisa í 16-liða úrslitum þar sem liðið dróst gegn feiknarsterkum Keflavíkingum.

Leikirnir í 16-liða úrslitum fara fram dagana 4. og 5. desember næstkomandi en hér að neðan má sjá alla leikina.

16-liða úrslit karla – Maltbikarinn 2016
Njarðvík b – Höttur
Keflavík – Þór Þorlákshöfn
Valur – Skallagrímur
FSu – Sindri
Grindavík – ÍR
Haukar – Haukar b
Þór Akureyri – Tindastóll
KR – Fjölnir