Jólastund í sundlauginni í kvöld

Sara Blandon, ásamt Árna Frey gítarleikara, ætla að skella sér í úlpurnar og vettlingana og flytja okkur hugljúfa og hátíðlega tónlist í sundlaug Þorlákshafnar í kvöld, 13.desember, kl: 21:00.

Á meðan slökum við á í sundlauginni og heitum pottum og njótum stundarinnar.

Það er frítt inná þennan viðburð.