Auður Helga Halldórsdóttir, ásamt íslenska stúlknalandsliðinu í hópfimleikum, komst í gær áfram í úrslit á EM sem fram fer í Portúgal um þessar mundir.
Í gær var keppt í undankeppni og fóru sex lið áfram í úrslit og fór Ísland áfram með þriðja besta árangurinn í undankeppninni.
Ísland fékk 14.800 stig á trampólítni, 14.400 stig á dýnu og 21.075 stig á gólfi sem gerir samtals 50.275 stig en þau lönd sem fóru áfram í úrslit með Íslandi eru Svíþjóð, Bretland, Finnland, Tékkland og Lúxemborg komust áfram.