Þór Þorlakshöfn mun taka þátt í Evrópubikarkeppni karla, FIBA Europe cup, í körfuknattleik á komandi vetri en Körfuknattleikssamband Evrópu staðfesti þátttökuliðin í keppnina í dag. Fjögur efstu lið í Íslandsmóti KKÍ fengu boð um þátttöku en Þór var eina liðið sem ákvað að skrá lið til leiks.
Þór er eitt af 32 liðum sem leika í FIBA Europe Cup, eða Evrópubikar FIBA, og liðið fer í undankeppni sem verður leikin í lok september. Þar leika 22 lið í fjórum riðlum um átta laus sæti í riðlakeppninni en þangað fara tíu lið beint.
Þórsarar eru í sjötta og neðsta styrkleikaflokki áður en dregið verður í riðlana á fimmtudaginn kemur, 14. júlí.
Þessi tíu lið fara beint í riðlakeppnina:
Kangoeroes Basket Mechelen (Belgíu)
BC Balkan (Búlgaríu)
HAKRO Merlins Crailsheim (Þýskalandi)
Hapoel Galil Elion (Ísrael)
New Basket Brindisi (Ítalíu)
Donar Groningen (Hollandi)
Anwil Wloclawek (Póllandi)
FC Porto (Portúgal)
CSM Oradea (Rúmeníu)
Gaziantep Basketbol (Tyrklandi)
Hinum 22 liðunum er raðað í styrkleikaflokka. Þórsarar eru í sjötta og síðasta flokki og munu mæta einhverju eftirtalinna liða í fyrstu umferð undankeppninnar.
Hapoel Haifa (Ísrael)
Cholet Basket (Frakklandi)
BC Kalev/Cramo (Eistlandi)
Petrolina AEK (Kýpur)