Ægir upp um deild

KSÍ hefur staðfest að Ægir Þorlákshöfn mun taka sæti Kórdrengja í Íslandsmóti karla í knattspyrnu í sumar en Kórdrengir verða ekki með lið í keppninni í ár þar sem þeir náðu ekki samningum við FH um að taka yfir félagið.

Í tilkynningu KSÍ um málið segir:

„Stjórn KSÍ hefur ákveðið að taka þátttökutilkynningu Kórdrengja ekki til greina og byggir ákvörðun sína á grein 13.4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Kórdrengir munu því ekki taka þátt í mótum sumarsins. Hér er um að ræða Lengjudeild karla og Mjólkurbikar karla. Ljóst er að þessi ákvörðun hefur áhrif í öllum deildum Íslandsmóts meistaraflokks karla, nema í Bestu deild. Mótanefnd KSÍ vinnur nú hörðum höndum að því að gera nauðsynlegar breytingar á mótum.“

Mun þetta hafa áhrif á allar deildir Íslandsmótsins nema Bestu deildina. KFG tekur þannig sæti Ægis í 2. deild, Hvíti riddarinn tekur sæti KFG í 3. deild, Hamar tekur sæti Hvíta riddarans í 4. deild og Álafoss tekur sæti Hamars í 5. deild.