Í dag er síðasti dagur jóla sem gjarnan er kallaður þrettándinn. Í Þorlákshöfn verða jólin kvödd þegar gengið verður með blys frá Ráðhústorgi og út á tjaldstæði þar sem kveikt verður á lítilli brennu. Þar verður síðan flugeldasýning í boði Kiwanisklúbbsins Ölver.
Farið verður af stað frá Ráðhústorginu klukkan 18.