Ragnar Nathanaelsson, miðherjinn öflugi í liði Þórs, var í dag valinn í úrvalslið fyrri umferðar í Dominos deild karla í körfubolta.
Raggi hefur spilað mjög vel með liði Þórs það sem af er tímabils og verður gaman að fylgjast með kappanum og Þórs liðinu í seinni hlutanum.
Ásamt Ragga eru í úrvalsliðinu Elvar Már Friðriksson – Njarðvík, Martin Hermannsson – KR, Pavel Ermolinskij – KR og Michael Craion – Keflavík.