Emil Karel Einarsson leikmaður Þórs í körfubolta var valinn í endanlegt 12 manna lið Íslands sem keppir á Norðurlandamóti U20 ára sem fram fer í Helsinki í Finnlandi í næstu viku.
Annar Þórsari heldur einnig til Finnlands en Baldur Þór Ragnarsson leikmaður Þórs er aðstoðarþjálfari Íslenska liðsins.
Frábær árangur Emils sem á eftir að láta til sín taka í Finnlandi og verður gaman að fylgjast með köppunum á Norðurlandamótinu.
Eftirtaldir leikmenn skipa íslenska liðið:
- Dagur Kár Jónsson · Stjarnan
- Emil Karel Einarsson · Þór Þorlákshöfn
- Eysteinn Ævarsson · Höttur
- Jens Valgeir Óskarsson · Grindavík
- Maciek Baginski · Njarðvík
- Maciek Klimaszewski · FSu
- Martin Hermannsson · KR
- Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
- Oddur Kristjánsson · KR
- Ragnar Bragson · ÍR
- Svavar Ingi Stefánsson · FSu
- Valur Orri Valsson · Keflavík