Þórsarar ferðast til Kýpur í fyrstu umferð í undankeppni Evrópubikars FIBA í körfuknattleik karla. Þar munu þeir mæta liðinu Petrolina AEK í hafnarborginni Larnaca á suðurströnd Kýpur.
Vinni Þórsarar leikinn mæta þeir Antwerp Giants frá Belgíu, liðinu sem Elvar Már Friðriksson lék með síðasta vetur. Ef leikurinn hins vegar tapast eru Þórsarar úr leik í keppninni.
Sex lið eru í hverjum riðli í undankeppnninni og eru riðlarnir fjórir. Leikið er með útsláttarfyrirkomulagi um sæti í sjálfri riðlakeppni Evrópubikarsins og eitt liðanna verður á heimavelli. Hin þrjú liðin í riðli Þórsara eru Sporting frá Portúgal, Göttingen frá Þýskalandi og Trepca frá Kósóvó.