Sundkappinn Hjörtur Már Ingvarsson setti Íslandsmet í 100 baksundi í flokki S6 á Reykjavíkurleikunum í gær. Hjörtur synti á tímanum 1:46,04 mínútum.
Hjörtur æfir með Íþróttafélaginu Firði og er nú fluttur í Hafnarfjörðinn en hann er þó Þorlákshafnarbúi í húð og hár.
Glæsilegur árangur hjá kappanum og óskum við honum til hamingju með árangurinn.